Aðalréttir - Grænmeti
Baunir úr sveitinni
Þetta er réttur frá Ítalíu, nánar til tekið frá Puglia. Er hann gott dæmi um einfaldleika ítalska eldhússins þar sem hráefnið er látið njóta sín til fullnustu.
250 g hvítar baunir
Sósa, hrært saman:
2 dl Ramoscello ólívuolía
½ dl balsamedik
2 msk maukaðar svartar ólífur Pate di Olive Nere frá Montanini
Baunirnar eru lagðar í bleyti yfir nótt og soðnar við vægan hita í léttsöltuðu vatni í 45 mín. Baunirnar eru látnar kólna nokkuð í vatninu sem síðan er hellt af þeim þegar þær eru enn snarpvolgar og sósunni blandað saman við baunirnar. Í staðinn fyrir svart ólífumauk má einnig nota grænt sem er bragðmildara.
Þessi réttur er ljúffengur einn sér og með góðu brauði. Þá er þessi baunaréttur góður með fiski. Einnig má blanda klettasalati, rifnum gulrótum og fínt söxuðu harðsoðnu eggi saman við baunirnar og þá er komið ljómandi salat.