Beint á leiðarkerfi vefsins
Fara á forsíðu vefs

Aðalréttir - Grænmeti

Grískur smjörbaunaréttur

250 g smjörbaunir
2 laukar
7 hvítlauksrif
1 lárviðarlauf
½ tsk kúmen
1 tsk paprikuduft
1 msk tómatkraftur
1 dós niðursoðnir tómatar
Herbamare kryddsalt og pipar

Baunirnar eru lagðar í bleyti yfir nótt. Flisjið annan laukinn og skerið í tvennt. Sjóðið baunirnar í nægu vatni ásamt lauknum, fjórum hvítlauksrifum og lárviðarlaufi við vægan hita í 45 mínútur.

Hinn laukurinn er fínt saxaður og steiktur í ólífuolíu á pönnu. Þrjú hvítlauksrif eru afhýdd og fínt söxuð. Þeim er bætt við laukinn á pönnunni ásamt kúmeni, paprikudufti og tómatkrafti. Léttsteikið það sem á pönnunni er í 3 mínútur. Tómatarnir eru settir á pönnuna og allt látið malla í 10 mínútur. Þá eru smjörbaunirnar settar á pönnuna ásamt 2 ½ dl af vatninu sem þær voru soðnar í. Rétturinn er nú soðinn við mjög vægan hita í 30 mínútur. Að lokum er rétturinn kryddaður með Herbamare kryddsalti og pipar.

Þessi réttur er mjög góður einn sér en passar vel með flestum kjötréttum. Í Grikklandi er hann hafður með kjötbollum. Rétturinn geymist mjög vel í frysti.



Viðburðir og tilboð

5.12 2011 - 10.1.2013

Happaleikur Udo´s


Auglýsing

Nánar um Pure



Toppmynd

Nánar um Cocowell

Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta