Aðalréttir - Grænmeti
Insalata di riso
Hrísgrjónasalat getur verið forréttur, fyrri réttur, meðlæti eða hreinlega máltíð, t.d. léttur hádegisverður.
Fyrst eru Arborio hrísgrjón soðin í vatni í um 20 mín. (5 cm af vatni látið fljóta yfir grjónin). Á meðan á suðunni stendur er gott að losa um grjónin svo þau klessist ekki. Að suðu lokinni er vatnið síað frá og grjónin skoluð í köldu vatni og síðan smá ólífuolíu blandað saman við.
- 1/2 eggaldin skorið sneiðar
- 1 paprika paprika skorin í ræmur
- 1 bolli soðnar canneloni baunir
- 2 bollar hrísgrjón soðin, sjá leiðbeiningar
- 5 ansjósuflök, skorin í tvennt
- 1 msk kaper
- parmigiano ostur, þunnar sneiðar
Steikið eggaldin og skerið í bita eða ræmur. Eggaldini, papriku og baunum er blandað saman, kryddað með tímían og ólífuolíu bætt í. Ansjósum og kaper bætt í eftir smekk, má sleppa. Bragðbætt með salti og pipar og parmigiano osti.






