Beint á leiðarkerfi vefsins
Fara á forsíðu vefs

Aðalréttir - Grænmeti

Kryddlegið tofu með grjónum og maís

2 dl af tofu er skorið í bita, á stærð við ½ sykurmola
2 dl hýðishrísgrjón
2 dl maískorn

Kryddlögur:
1 dl sólblóma- eða hnetuolía
1 msk rauðvínsedik
2 msk sojasósa
1 fínt saxað hvítlauksrif
1 tsk chilliþykkni

Blandið þessu öllu saman og látið tofu bitana liggja í kryddleginum í 3-6 klukkustundir. Sjóðið hýðishrísgrjónin. Blandið saman tofu, hrísgrjónum og maískorni. Þetta er síðan léttsteikt á pönnu, helst wok-pönnu. Bragðbæta má þennan rétt með fínt söxuðum vorlauk, einnig má bæta í hann soðnum kjúklingi og/eða rækjum.



Viðburðir og tilboð

5.12 2011 - 10.1.2013

Happaleikur Udo´s


Auglýsing

Nánar um Pure



Toppmynd

Nánar um Doves

Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta