Beint á leiðarkerfi vefsins
Fara á forsíðu vefs

Aðalréttir - Grænmeti

Kúskússalsa

2 dl vatn
1 tsk Herbamare kryddsalt
1 msk góð ólífuolía
2 1/2 dl heilhveiti kúskús
3 msk rúsínur (settar í volgt vant)
2 glóðaðar paprikur frá Montanini, fínt saxaðar
1 fínt saxaður rauður chilipipar (hreinsið fyrst fræin úr)
1 dl saxaðir, niðursoðnir tómatar
2 msk sítrónusafi
1 1/2 tsk kóríanderduft
1/2 tsk cummin
1/2 tsk cayennipipar
  • Hitið vatnið og bragðbætið með Herbamare. Hitið ólífuolíuna í potti. Setjið kúskús í pottinn og blandið því vel saman við olíuna. Hellið svo heita vatninu yfir kúskúsið í pottinum. Setjið lok á pottinn og látið standa í 10 mínútur.
  • Kúskúsið er nú sett í skál og allt annað sem talið var upp í uppskriftinni blandað vel saman við kúskúsið. Hellið þó vatninu af rúsínunum. Þetta kúskús salsa er mjög gott eitt og sér en einnig með lambakjöti og kjúkling.


Viðburðir og tilboð

5.12 2011 - 10.1.2013

Happaleikur Udo´s


Auglýsing

Nánar um Pure



Toppmynd

Nánar um Biotta

Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta