Aðalréttir - Grænmeti
Pasta með villisveppum og papriku
4 dl saxaðir villisveppir, t.d. lerki-, furu- eða kóngssveppir
2 msk pressaður sítrónusafi
3 msk góð ólífuolía
1 laukur, skorinn í teninga 1x1 cm
1 lauð paprika, skorin í teninga 1x1 cm
1 græn paprika, skorin í teninga 1x1 cm
2 msk sherrýedik
salt og hvítur pipar eftir smekk
pasta fyrir fjóra
- Blandið saman sveppum og sítrónusafa.
- Hitið olíuna og steikið laukinn við vægan hita. Þegar laukurinn er orðinn mjúkur er paprikunni bætt í pottinn og léttsteikt í 5 mínútur.
- Setjið sveppina í pottinn, kryddið með salti og pipar og steikið í 3 mínútur. Bætið því næst sherrýedikinu saman við.
- Sjóðið pastað. Deilið soðnu pastanu á 4 diska og dreifið sveppasósunni yfir.
Þetta er aldeilis yndislegur réttur og þótt ótrúlegt sé, gerir sherrýedikið kraftaverk.






