Beint á leiðarkerfi vefsins
Fara á forsíðu vefs

Aðalréttir - Grænmeti

Suðræn kjúklingabaunahræra

1 dós kjúklingabaunir
2 msk fínt saxaður laukur
½ msk fínt saxað ferskt timian
1 fínt hakkað hvítlauksrif
6 hökkuð ansjósuflök
½ dl góð ólívuolía
1 dl kjúklingasoð
hvítur pipar úr kvörn

  • Hitið ólívuolíuna í potti. Setjið lauk, timian, hvítlauk og ansjósur í olíuna. Látið þetta malla í olíunni við vægan hita. Olían má ekki verða of heit því hvítlaukurinn má alls ekki brenna.
  • Hellið vatninu af baununum og blandið þeim vel saman við olíuna í pottinum. Hellið kjúklingasoðinu í pottinn og sjóðið baunirnar við mjög vægan hita í 20 mínútur, hrærið af og til í pottinum.
  • Baunirnar eru nú settar í matvinnsluvél og þær maukaðar. Maukið má krydda með hvítum pipar ef þurfa þykir. Ef bæta þarf meiri vökva saman við baunirnar þegar verið er að mauka þær má bæta við skvettu af hvítvíni eða þá bara vatni.

Þessi kjúklingabaunahræra er einstaklega góð með steiktum gellum, rauðsprettu eða silungi. Áður en rétturinn er borinn á borð má bæta örlitlu af ólívuolíu saman við maukið og hræra kröftuglega í því. Þá verður það loftkennt. Þessa hræru má frysta eða geyma í ísskáp.



Viðburðir og tilboð

5.12 2011 - 10.1.2013

Happaleikur Udo´s


Auglýsing

Nánar um Pure



Toppmynd

Nánar um Yogi

Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta