Beint á leiðarkerfi vefsins
Fara á forsíðu vefs

Aðalréttir - Kjöt

Balsamgæs

2 gæsabringur, 4 steikur
2 msk ólífuolía
½ dl balsamedik
salt og svartur pipar úr kvörn
½ tsk kanill
1 dl aðalbláber
  • Hitið olíuna í djúpri pönnu eða potti. Setjið gæsabringurnar í pönnuna með skinnhliðina niður og steikið við vægan hita í um 15 mínútur. Snúið bringunum við og steikið þær í 5 mínútur í viðbót.
  • Takið bringurnar af pönnunni og bragðbætið með ögn af salti. Setjið yfir þær álpappír og handklæði til að halda þeim heitum.
  • Hellið fitunni af pönnunni og setjið aftur á helluna. Setjið balsamedik, aðalbláber og kanel á pönnuna og sjóðið við vægan hita í 15 mínútur. Bragðbætið með salti og pipar.
  • Skerið gæsabringurnar í þunnar sneiðar og raðið á 4 diska, skiptið sósunni yfir bringurnar.


Gott meðlæti er léttsteiktur rauðlaukur, linsur og blómkál eða spergilkál.





Toppmynd

Nánar um Biotta

Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta