Aðalréttir
Dolmades
1 glas af vínlaufum
2 bollar soðin hýðishrísgrjón
safi úr 1 sítrónu
2 msk ólífuolía
1 lítið hvítlauksrif pressað
12 sólþurrkaðir tómatar Sanremo, smátt skornir
4 msk steinelja söxuð
½ bolli furuhnetur
200 g fetaostur
Takið vínlaufin úr glasinu og skolið í vatni til að losna við saltbragð og leggið til hliðar. Blandið öllu öðru saman í skál. Þerrið eitt vínlauf í einu og setjið kúfaða msk af fyllingunni í eitt hornið, rúllið laufinu upp og brjótið upp á hliðarnar og leggið í fat með brotin niður. Þegar fyllingin er upp urin er fatið sett í ísskáp í 2-3 tíma áður en Dolmades er borið á borð.






