Aðalréttir
Hunangs-tofu
Þessi tofu-réttur er frá Ítalíu. 1 dl af hunangi er soðið við mjög
vægan hita með stjörnuanís (1 stykki). Hunangið er látið kólna.
Tofu er skorið í bita sem eru 3 cm á þykkt og 6 cm á hvorn kant.
Penslið eða berið hunangið á tofu-bitana og glóðarsteikið það í
ofni þar til það er orðið fallega brúnt. Þessi tofu-réttur er góður
með ýmsum vel krydduðum grænmetisréttum og feitum fiski, svo sem
lúðu og laxi.






