Beint á leiðarkerfi vefsins
Fara á forsíðu vefs

Aðalréttir

Risotto með kóngssveppum og sóltómötum

250 g arborio hrísgrjón
1 meðalstór laukur skorinn smátt
2 kúfaðar msk þurrkaðir kóngsveppir
6 Pumate Sanremo sólþurrkaðir tómatar, gróft skornir
3 tsk. Plantaforce jurtakraftur
4 msk rifinn parmigiano ostur
2 dl hvítvín
ólífuolía og smjör

Sjóðið upp á sveppunum í ½ l af vatni og látið þá liggja í vatninu í a.m.k 15 mín. Þar sem sandkorn geta leynst í sveppunum er best að hella soðinu í gegnum fínt sigti eða kaffifilter. Skolið síðan sveppina, þerrið og grófsaxið. Hitið sveppasoðið, bætið Plantaforce og hvítvíninu saman við

Steikið lauk og sveppi í potti í 50/50 ólífuolíu og smjöri við meðalhita þar til laukurinn er glær. Bætið sóltómötum og hrísgrjónum út í. Hrærið stöðugt og bætið soði í eftir þörfum, litlu í einu, þar til soðið er allt komið í pottinn. Ef hrísgrjónin eru ekki alveg tilbúin má bæta í vatni. Í risotto eiga hrísgrjónin að vera al dente, það er örlítið stinn við miðju, sem sé varast ber ofsuðu. Þegar grjónin eru til er ostinum hrært saman við og risottoið borið fram strax.



Viðburðir og tilboð

5.12 2011 - 10.1.2013

Happaleikur Udo´s


Auglýsing

Nánar um Pure



Forsíða:

Uppskriftir Aðalréttir

Toppmynd

Nánar um Doves

Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta