Međlćti
Villisveppasósa
25 g af þurrkuðum sveppum
2 msk fínt saxaður laukur
eitt fínt saxað hvítlauksrif
2 tsk Plantaforce jurtakraftur
1 msk smjör
˝ tsk timian
Herbamare kryddsalt eftir smekk
rjómi
- Skolið sveppina fyrst í stórri skál af vatni til að losna við hugsanleg sandkorn. Best er að sjóða upp á þeim, fyrir 20 g af sveppum er hæfilegt að nota 2-3 dl af vatni. Látið sveppina vera í vatninu í 15-20 mín eða lengur.
- Laukur og hvítlaukur eru steiktir í potti í smjöri við frekar vægan hita þar til þeir eru mjúkir.
- Síið seyðið af sveppunum, skerið þá smátt ef vill, bætið þeim í pottinn og steikið þá með í 5 mín.
- Hellið seyðinu í pottinn, en gætið þess að botnfallið fylgi ekki með, eða síið það fyrst í gegnum kaffifilter til að fyrirbyggja að hugsanleg sandkorn lendi með í sósunni.
- Bætið Plantaforce í, hrærið og látið sveppina sjóða þar til að rúmur helmingur af vökvanum hefur gufað upp. Þá er rjómanum hellt í pottinn, magn eftir smekk. Segja má að því þykkari sem sósan er því bragðmeiri er hún. Látið nú sósuna sjóða við vægan hita í 5 mínútur, þá er sósan bragðbætt með timían og Herbamare.
- Fyrir þá sem vilja, má hafa með henni ferska sveppi. Þá eru um 100 g af sneiddum ferskum sveppum steiktir með villisveppunum. Ef notaðir eru ferskir sveppir má sósan vera aðeins þynnri en ella.
-
Bragðbæta má sósuna með skvettu af Portvíni eða sojasósu - Portvín er þó betra.






