Emile Noél
Emile Noël - lífræn jómfrúarolía úr ólífum "heimspeki fyrstu kaldpressunar".
Fyrirtækið heitir réttu nafni Huilerie Emile Noël og er staðsett í Pont- St-Esprit - í ólífuhéraðinu milli Provence og Cévennes sem hefur allt frá 1920 verið þekkt fyrir heimsins bestu olíur. Fyrirtækið er stofnað 1966 og var Emile Noël fyrsti olíugerðarmaðurinn í Frakklandi til að framleiða kaldpressaða jómfrúarolíu. Hann kom sér upp pressu sem gerði það mögulegt að hægt var að pressa olíu úr grænmeti við lágan hita eða undir 70 gráðum eða þannig að olían hélt sinni náttúrulegu hollustu og bragði.
Emile Noël var líka fyrstur til að framleiða lífrænar olíur enda var hann frumkvöðull á því sviði . Bragðgæðin á olíunum eru þvílík að leitun er að öðru eins og koma menn um langan veg til að prófa. Í dag er Huilerie Emile Noël sjálfstætt fjölskyldufyrirtæki sem er leiðandi á franska markaðnum í framleiðslu á hágæða jómfrúar (fyrsta pressun) kaldpressuðum og lífrænum olíum.
Émile Noel olíurnar eru framleiddar sem kaldpressaðar ólívuolíur, sesam olía og margar fleiri olíur eru í þeirra vörulínu. Heilsa ehf er stolt af að fá að vera með einkaleyfi á Íslandi af þessum frábæru vörum.
Lesa meira um Emile Noël
Sjá allar vörur frá Emile Noél





