Beint á leiđarkerfi vefsins
Fara á forsíđu

Heilsa Matvara

Heilsa hefur lengst af framleitt talsvert magn af matvöru. Í framtíðinni munum við leggja aukna áherslu á að bjóða viðskiptavinum okkar uppá fjölbreytt úrval af ýmsum matvörum undir eigin merkjum, með því getum við stjórnað betur framleiðslunni með áherslu á gæði og fjölbreytileika. Í dag bjóðum við uppá fjölbreytt úrval af kornvöru, hrísgrjónum, hnetum, fræum, baunum og þurrkuðum áhvöxtum og berjum ýmissonar sem koma frá hinum ýmsu löndum heims. Við val á hráefni er lögð rík áhersla á gæði vörunnar og er stór hluti af vörunum okkar lífrænar og vottaðar sem slíkar. Þær vörur sem ekki eru lífrænar eru 100% náttúrulegar án aukaefna.

Allar vöru í matvörulínu Heilsu eru merktar með upprunalandi þannig að neytendur geta séð hvaðan varan kemur. Við látum pakka þessari vöru hjá samstarfsaðili okkar í Bretlandi í fullkominni verkmiðju sem sérhæfir sig í pökkun á þurrvöru og er vottuð af Soil Association einum virtasta vottunaraðila á lífrænum matvælum í Bretlandi. Soil Association var stofnað 1946 af framsýnum einstaklingum sem báru ríka ummhyggju fyrir umhverfinu og höfðu áhyggjur af sívaxandi iðnaðarframleiðslu í matvælaiðnaðinum uppúr seinna stríði.

Við framleiðslu og val á hráefni og pökkun á vörum Heilsu er lögð áhersla á vörugæði, rekjanleika og öryggi. Gæðaeftirlit tryggir að réttum verkferlum sé fylgt og allt er skráð þannig að rekjanleiki og öryggi fyrir neytendur er tryggt. Þurrkaðir ávextir og korn eru viðkvæm vara og mikilvægt er að geyma vöruna við rétt hitastig. Þess vegna geymum við þessa vöru í kæli til þess að hún sé sem ferskust fyrir viðskiptavini okkar enda eru þessar vörur mjög bragðgóðar og ljúffengar. 

Við bjóum uppá nokkur hundruð náttúruleg og lífæn innihaldsefni sem eru fáanleg í heilsubúðum og matvöruverslunum um land allt.

Sjá allar vörur frá Heilsa Matvara


Forsíđa:

Vörur

Toppmynd

Nánar um Vivani

Stjórnborđ

Minnka letur Stćkka letur Hamur fyrir sjónskerta