Beint á leiđarkerfi vefsins
Fara á forsíđu

Heilsa vítamín

Heilsa hefur í áratugi þróað og framleitt vítamín undir merkjum Heilsu. Vítamín heilsu hafa átt mikilli velgengni að fagna á Íslandi og eru þróuð og valin sérstaklega með þarfir íslendinga að leiðarljósi og samkvæmt íslenskum reglum um magn innihaldsefna og ráðlagða dagskammta. Þeim er pakkað í vandaðar umbúðir úr dökku gleri til að varðveita gæði innihaldsefna sem best og vernda þau gegn birtu frá sólarljósi, en gler er eitt besta og stöðugasta form umbúða til að varðveita gæði matvæla.

Í heilsulínunni er boðið uppá flestar vinsælustu tegundir af vítamínum s.s. B, C, D og E en einnig eru í boði ýmsar algengar fjölvítamínblöndur s.s. Múlti vít sem inniheldur mikilvæg vítamín og steinefni til að viðhalda daglegri þörf líkamans á þeim og Múlti mínus sem er fjölvítamínblanda án A og D vítamína fyrir þá sem taka lifrarolíu og Barna vít sem er fjölvítmín blanda (tuggutöflur) með náttúrulega sætuefni (ávaxtasykri) svo nokkur dæmi séu nefnd.

Í heilsulínunni er einnig kalk, kalk með D vítamíni og Kalk og magnesíum og steinefna blanda sem heitir Múlti míneral og inniheldur öll helstu steinefni og málma sem líkaminn þarfnast.

Jafnframt erum við með nokkrar sérhæfðar blöndur eins og Kvennablóma sem inniheldur mikilvæg virk efni fyrir konur á breytingaskeiði, Með barni sem er bætiefnablanda fyrir verðandi mæður með hæfilegum skammti af fjölvítmínum, fólinsýru, járni og Omega 3 fitusýrum. Ein af vinsælust blöndunum í Heilsulínunni er Liðaktín Quatro sem inniheldur 4 virk efni sem eru talin mikilvæg fyrir liðamót og stoðkerfi og hafa reynst vel fyrir fjölmarga til að bæta liðleika og minka verki.

2 af vinælustu vörunum með Heilsu merkinu eru Colon Cleanser sem inniheldur Psyllium trefjar með Acidophilus fyrir meltinguna og Acidophilus Plús sem inniheldur góða og mikilvæga meltingargerla. Einn mikilvægasti þáttur í starfsemi líkamans er góð melting svo að líkaminn nái að nýta þau næringarefni sem við fáum úr fæðunni á sem bestan hátt.

Fyrir ónæmiskerfið er sólhattur bæði fjótandi og í töfluformi frá Alfreð Vogel en gaman er að segja frá því að Bioforce var fyrsta fyrirtækið sem Heilsa flutti inn vörur frá og eiginlega grunnurinn að stofnun fyrirtækisins. Auk hans bjóðum við uppá ólífulauf sem er öflugt fyrir ónæmiskerfið. 

Vítamín Heilsu eru þróuð og framleidd í samstarfi við Bandaríska fyrirtækið Tishcon Corporation og hefur Heilsa starfað með því fyrirtæki í rúma 3 áratugi. Fyrst var aðeins hluti framleiðslunnar hjá þaim en nú eru nær öll vítamín undir merkjum Heilsu framleidd þar. Tishcon á og rekur 2 fullkomnar vítamínverksmiðjur í New York og Maryland og framleiðir vörur bæði fyrir heimamarkað en einnig fyrir fjölmörg fyrirtæki í Evrópu og Asíu. Fyrirtækið er gamalgróið með mikla reynslu í þróun og framleiðslu á hágæða vítamínum og starfar samkvæmd ströngustu gæðakröfum frá matvælaeftirliti Bandaríkjanna FDA. Tishcon er með GMP gæðavottunarkerfi og hefur á að skipa fullkomnum rannsóknarstofum til að þróa og prófa hráefni og fullunna vöru. Vörur Heilsu eru þannig þróaðar og framleiddar samkvæmt ströngu gæðakerfi til að tryggja gæði og áreiðanleika. Við framleiðslu og val á hráefni eru eftirfarandi þættir mikilvægir:

  • Val á hráefnisbirgjum með rekjanleika og gæði að leiðarljósi.
  • Prófun á hráefni (virkum innihaldsefnum) til að tryggja rétt innihaldsefni, magn og gæði.
  • GMP gæðaferli á öllum stigum framleiðslu.
  • Varðveisla á öllum framleiðslulotum til að hægt sé að gera samanburðarprófun ef til innköllunar kemur á vöru sem farið hefur á markað.
  • Próun á að innihald fullunninar vöru sé í samræmi við það sem segir á umbúðum eða samkvæmt uppskrift.
  • Rekjanleiki með lotunúmerum og fyrningaskráningu á fullunninni vöru.
  • Vandaðar umbúðir og rétt geymsla á vörum til að tryggja gæði og ferskleika til neytenda.
  • Fræðsla til almennings og fagfólks um nokun. Notkunarleiðbeiningar.

Auk þess kaupum við hráefni bæði frá Bioforce í Sviss og Efamol í Bretlandi sem eru partur af vítamínlínu Heilsu. Sólhatturinn (bæði í töfluformi og sem mixtúra) kemur frá Sviss og er talinn góður til að vinna bug á ýmsum veirum og Efamolið Kemur frá Efamol í Bretlandi og er í belgjum og inniheldur mikið magn af Omega 6 og er uppistaðan í þeim Kvöldvorrósaolía. Báðir þessir aðilar eru fremstir á sýnu sviði í þróun og framleiðslu á heilsuvörum.

Vítamín Heilsu eru fáanleg í öllum apótekum og flestum heilsubúðum, matvöruverslunum og stórmörkuðum á Íslandi. Við leitumst við að bjóða uppá gott úrval af alhliða vítamínum og steinefnum, jurtum og sérhæfðum blöndum og leggjum áherslu á stöðugar umbætur til að tryggja besta fáanlega virka efni með tilliti til virkni, hreinleika, og á sem náttúrulegastan hátt. Markmið okkar er að koma reglulega með nýjar afurðir á markað sem geta gagnast viðskiptavinum okkar á sem bestan hátt þannig að ábendingar um nýjar vörur eða breytingar á núverandi eru ávallt vel þegnar.

Sjá allar vörur frá Heilsa vítamín


Forsíđa:

Vörur

Toppmynd

Nánar um Maldon

Stjórnborđ

Minnka letur Stćkka letur Hamur fyrir sjónskerta