Kalibio og Babynat
Vitagermine, staðsett í Aquitaine (Bordeaux í Frakklandi) hefur yfir 40 ára reynslu í að þróa, framleiða og markaðssetja lífræna matvöru og aðrar manneldisvörur. Vitagermine hefur einsett sér að vera meðal fremstu fyrirtækja á sviði heilsu- og lífrænnar matvöru. Framleiðsluvörur þeirra eiga við alla fjölskylduna og eftirfarandi vörumerki er hægt að nálgast hjá Heilsu ehf.:
Babynat - lífræn matvara fyrir ungabörn:
Babynat sérhæfir sig í lífrænni matvöru fyrir ungabörn. Babynat hefur upp á að bjóða heildstæða línu sem inniheldur t.d. mjólk, ávaxtasafa, jurtablöndur, kornmeti, kex, ávaxta- og grænmetismauk, máltíðir..., og hráefnið er allt úr lífrænum landbúnaði.
Fram að þriggja ára aldri eru börn mjög viðkvæm fyrir mengun og meindýraeitri. Líkaminn er ekki nógu þroskaður til að skilja þau í burtu. Til að vernda börn eru staðlar í reglugerðum varðandi samsetningu næringarefna í mismunandi gerðum barnamats strangir. Með því að nota lífrænt hráefni fer Babynat eftir þessum tilskipunum á náttúrulegan máta og verndar umhverfið í leiðinni.
Lífrænn landbúnaður er auðvitað náttúulegasta aðferðin til að forðast eiturefnaleifar og þessi aðferð við framleiðslu eflir notkun náttúrulegs húsdýraáburðar og bann við notkun tilbúinna efna. Þar að auki er öll notkun GMO og erfðabreyttra íblöndunarefna útilokuð.
Af þessum sökum er Babynat háð tveimur reglugerðum: reglugerð varðandi barnamat og reglugerð varðandi lífræna framleiðslu.
Ung börn sem eru vanin á Babynat lífræna matvöru venjast góðu bragði og góðri næringu. Uppskriftirnar eru hannaðar með ráðleggingar barnalækna í huga og úr hágæða lífrænu hráefni, án óþarfra íblöndunarefna: til dæmis er krukkumatvaran án viðbætts sykrósa, salts eða þykkingarefna. Að auki eru Babynat blöndurnar án helstu ofnæmisvaldanna eins og kiwi og sellerís og í boði eru blöndur án mjólkur, glúteins eða eggja, þannig að hægt sé að finna vörur sem henta hverju barni.
Babynat vörurnar eru með hinu franska AB lógói.
KaliBio - lífræn lína fyrir börn
Vitabio - lífræn lína fyrir fullorðna
VITA SPORT - íþrótta næring
Botanicus - lína kjarnaolía
Sjá meira á Vitagermini
Sjá allar vörur frá Kalibio og Babynat





