Beint á leiđarkerfi vefsins
Fara á forsíđu

Madara Cosmetics

MÁDARA kemur frá Lettlandi, litlu landi á Eystrasaltssvæðinu í Norður-Evrópu, sem megnað hefur að vernda mörg ósnortin og villt svæði sem og mikla breidd blóma og jurta. Norðlæg sumur eru eins og Íslendingar þekkja mun skemmri og harðari en gengur og gerist og þar af leiðir þurfa jurtirnar að öðlast allan sinn kraft á örstuttu blómaskeiði og laða að býflugur svo þær geti lifað af veturinn. Því eru jurtirnar, þegar þær eru tíndar, á þessum slóðum sérstaklega ríkar af virkum kjörnum og seyðum sem eru notuð í framleiðslu MÁDARA snyrtivaranna. Þær eru kraftmiklar og virkar.

MÁDARA eru fullkomlega náttúruleg og lífræn breidd húðsnyrtivara sem eru vottaðar samkvæmt hinum alþjóðlega ECOCERT staðli. Innihald þeirra geymir lífrænt vottaðar blómstrandi jurtir og jurtaþykkni frá Eystrasaltslöndunum, sem og aðrar náttúrulegar undirstöður.
MÁDARA er pakkað í umhverfsivænar umbúðir sem eru endurvinnanlegar. Við notum eingöngu vistvæn hreinsiefni við alla framleiðslu vara okkar; við framkvæmum hvorki tilraunir á dýrum eða notum orkufrekan tækjabúnað.

MÁDARA snyrtivörurnar henta öllum aldurshópum og umbúðirnar eru sérlega notendavænar, kremin eru í pumpum sem tryggja að súrefni komist ekki að kremunum, en þar sem ekki eru notuð rotvarnarefni í snyrtivörurnar eru þær viðkvæmar fyrir súrefni og þannig tryggja framleiðendurnir líka að ekki berist sýklar og gerlar af fingrum í kremin.

Okkar skynjun á fegurð er greipt í kjörorð okkar - dýpra en hörund. Þetta merkir að fegurðin er handan útlitsins. Þetta er fegurð smíðuð úr heilsu, kærleika, hlýju og sumri sem þú berð utan á þér og allir sjá sem verða á vegi þínum. Fegurð er fölskvalaus tilfinning, einlægt bros, hlýlegt og ástúðlegt viðmót gagnvart fólki og náttúru. Kvenleg og falleg í dýpsta skilningi. Fegurð sem ekki skaðar blóm á engjum. Þetta er viska og kraftur náttúrunnar. Sjá allar vörur frá Madara Cosmetics




Forsíđa:

Vörur

Toppmynd

Nánar um Hale & Hearty

Stjórnborđ

Minnka letur Stćkka letur Hamur fyrir sjónskerta