Beint á leiđarkerfi vefsins
Fara á forsíđu

Maldon

Maldon_logoStrandbærinn Maldon í Essex í Englandi hefur verið miðpunktur saltframleiðslu frá miðöldum, en sögur segja að saltvinnsla úr sjó hafi verið fundin upp á þessu svæði á þeim tíma sem Rómverjar ríktu yfir Bretlandi fyrir 2000 árum. Maldon Crystal Salt fyrirtækið er starfrækt við árbakka á ströndinni, þar sem það hefur í á annað hundrað ár haldið áfram að þróa framleiðslu á saltkristalsflögum með gömlum hefðbundnum aðferðum. Á þessu svæði er kjöraðstæður fyrir gott saltvatn, heppileg blanda veðra, úrkomulítið, vindasamt og sólríkt veðurfar auk lágt lyggjandi flæðilanda.

Hafsvatn er tekið eftir þurrkatíð á háflóði hálfs mánaðarlega. Eftir hreinsun fer það í risastórar uppgufunarpönnur sem kynt er undir. Við uppgufunina myndast pýramídalaga kristallar. Þessir kristallar sem einkenna Maldon salt, eru ekki harðari í sér en svo að auðvelt er að mylja þá á milla fingra sér. Bragðið er verulega frábrugðið venjulegu matarsalti. Það er einkar fróðlegt að fá sér smakkprufu af venjulegu salti og Maldon salti. Venjulegt salt situr óþægilega á tungunni og gefur eilítið beiskt eftirbragð. Maldon salt er mildara, bragðið minnir á sjávarúða og er laust við kemískan keim venjulegs borðsalts.

Maldon vörurnar sem nú eru fáanlegar:

Maldon Sjávarsalt:

Maldon sjálvarsaltið hefur lengi verið þekkt fyrir enstök gæði. Margir af bestu matreiðslusérfræðingum heimsins hafa lofað saltið og mælt með því. Mjúkar flögurnar eru einstaklega bragðgóðar og lausar við rammt eftirbragð.

Flest salt inniheldur efni til að fyrirbyggja kekki í röku veðri, en Maldon salt er algerlega náttúruleg afurð sem engu er bætt í og ekkert er fjarlægt.  

Maldon lífrænn pipar:

Maldon lífrænum svörtum piparkornum sem eiga uppruna sinn í Kerala í Suður Indlandi nýlega verið bætt við vöruúrvalið en Kerala svæðið er víðþekkt fyrir að rækta heimsins besta pipar.

Maldon Reykt Sjávarsalt:

Nýjasta saltið frá Maldon Crystal Salt Company er reyktar saltflögur. Það er kaldreykt og algerlega náttúrulegt. Kristallarnir eru meðhöndlaðir með hefðbundnum reyk aðferðum, til að tryggja virkilega spennandi bragð. Salt bragðið þekkja allir, en nú er það blandað með ljúffengu, lúmsku reyk bragði sem bætir fágun við uppáhalds réttinn þinn. Frábært á skelfisk og kjöt, til að nota í sósur, salsa, súpur og marineringar!

Heimasíða Maldon Crystal Salt Company: http://www.maldonsalt.co.uk/

Sjá allar vörur frá Maldon


Forsíđa:

Vörur

Toppmynd

Skođa Biotta nánar

Stjórnborđ

Minnka letur Stćkka letur Hamur fyrir sjónskerta