Sóley Organics
Konan að baki Sóley húðsnyrtivörulínunnar er Sóley Elíasdóttir en hún starfaði áður sem farsæl leikkona til fjölda ára. Sóley á ekki langt að sækja áhugann og þekkinguna á íslenskum lækningajurtum því að baki henni standa margir ættliðir grasalækna og nokkrir hafa orðið meðal þekktustu alþýðuhetja á Íslandi.
Ţað kom því ekki á óvart þegar Sóley ákvað að söðla um haustið 2007 og svara kalli formæðra sinna og -feðra og hefja framleiðslu græðismyrsla. Þar tók hún m.a. upp þráðinn frá langalangaömmu sinni, Grasa-Þórunni (Þórunni Gísladóttur) sem einnig var ljósmóðir. Grasa-Þórunn var móðir eins þekktasta grasalæknis á Íslandi, sem jafnan var kallaður Erlingur grasalæknir (Erlingur Filippusson). Saga af langalangaömmu Sóleyjar, Grasa-Þórunni, segir að hún hafi sagt að: Guð skapaði okkur á jörðinni og hann skapaði líka öll grösin, sem myndu lækna alla sjúkdóma sem upp koma.
Grasa-Þórunn kvað gjarnan rímur yfir fólki þegar hún stundaði lækningarnar, svo það lítur út fyrir að leikkonan Sóley hafi átt fleira sameiginlegt með formóður sinni.
Leidd áfram af sterkum íslenskum náttúruöflum hóf Sóley framleiðslu Græðis eftir aldagamalli uppskrift sem varðveist hefur í fjölskyldu hennar til dagsins í dag. Uppistaðan í Græði eru kraftmiklar íslenskar jurtir, þar með talið villt handtínt birki (salix herbacea) og vallhumall sem saman mynda grunninn í allri Sóley húðsnyrtivörulínunni.
Sóley, sem hóf framleiðslu græðissmyrsla í eldhúsinu heima, framleiðir nú vörur sínar hjá Fagvörum ehf., matvælaframleiðslufyrirtæki í Hafnarfirði.
Sóley leggur allan sinn metnað í að framleiða hreinar húðsnyrtivörur sem innblásnar eru af íslenskri náttúru. Vönduð vinnubrögð, sérfræðiþekking og fræðsla í anda hreinna og aukaefnalausra húðsnyrtivara eru okkar markmið, sem og auðvitað hrein og ómenguð náttúra.
Allar okkar vörur eru framleiddar úr villtum íslenskum lækningajurtum sem eru valdar sérstaklega með það fyrir augum að skila hámarksárangri. Við notum engin óæskileg aukaefni. Hugsaðu vel um þig, húðina þína og umhverfið.
Sannfæring okkar kemur heim og saman við sannfæringu forfeðranna; Það semvið setjum á húð okkar er fæða fyrir húðina, og næring - okkur á því aðvera óhætt að borða allt sem við berum á húð okkar. Við mælum auðvitað ekki með því - en þú gætir sefað sáran háls með því að setja 1 tsk. af GRÆÐI út í heitt vatn og dreypt á. Við erum hreykin af því að hafa náð að fanga magnaðan kraft vandlega valinna og villtra íslenskra, handtíndra jurta í einstakar blöndur sem geyma gæði íslenskrar náttúru. Í náttúrunni býr áhrifamáttur lækningarinnar.
Einfaldleiki
Við hjá Sóley bókstaflega umföðmum einstaklega virka en viðkvæma eiginleika íslenskra lækningajurta. Við byggjum á reynslubrunni forfeðra okkar sem nær allt aftur til tíma víkinganna. Með einstakri lagni náðu víkingarnir að fanga það besta úr íslenskum lækningajurtum. Það sama gerum við í allri okkar húðsnyrtivörulínu í ykkar þágu.
Umhverfið
Ísland er okkar arfleið. Við leggjum okkur því fram um að raska sem minnst gæðum náttúrunnar. Við vitum að við erum ekki fullkomin, en því meira sem við vöndum okkur, því betri verðum við. Landið sem jurtirnar okkar eru handtíndar á er nú í alþjóðlegu vottunarferli hjá Vottunarstofunni Túni.
Tilraunir dýrum
Ţær myndum við aldrei framkvæma!
Kjarnaolíur
Við notumst eingöngu við lífrænt vottaðar olíur eins og kókoshnetuolíu, kvöldvorrósarolíu og möndluolíu sem eru án allra óækilegra aukaefna.
Engar dýraafurðir
Ekkert af innihaldinu kemur frá dýrum eða afurðum þeirra (ef frá er talið býflugnavaxið). Allar húðsnyrtivörurnar henta því þeim sem neyta eingöngu grænmetis.
Vörur okkar geyma eins mikið af lífrænt vottuðu innihaldi og nokkur kostur er. Sóley húðsnyrtivörurnar eru 100% náttúrulegar og umhverfisvænar. Öll okkar uppskera er í einstökum gæðaflokki og um leið gætum við þess að hún innihaldi aðeins virk efni.
Sóley húðsnyrtivörurnar eru lausar við tilbúin rotvarnar-, ilm- og litarefni, jarðolíur, parabenefni, paraffin, phthalates, propylene glycol, PABA, petrolatum, sem og önnur kemísk efni sem skaðað gætu manninn og náttúruna.
Allar götur frá víkingatímanum hefur það verið trú manna að íslenskar jurtir séu kraftmeiri en jurtir sem vaxa víðast hvar annars staðar. Þessi tiltrú hefur nú verið staðfest því komið hefur í ljós að efni í íslenskum lækingajurtum eru virkari en í jurtum sem vaxa á suðlægari slóðum. Þetta stafar af því að íslensk sumur standa stutt yfir og því þurfa jurtirnar að öðlast allan sinn kraft til þess að lifa af veturinn á örskömmum tíma.
Allar jutirnar í Sóley húðsnyrtivörulínunni eru handtíndar í hreinni náttúru Íslands þegar virkni þeirra er í hámarki.
Helstu lækningajurtirnar í Sóley húðsnyrtivörulínunni eru birki og vallhumall, eða þær sömu og formæður og -feður hennar notuðu með undraverðum árangri.
Birki (Betula pubescens) Villta íslenska birkið er þekkt lækningajurt og einstakt í sinni röð. Birki inniheldur flavonóíða sem geta haft allt í senn bólgueyðandi, bakteríudrepandi og veirudrepandi áhrif. Birkið er blóðhreinsandi og mikið notað við húðsjúkdómum svosem exemi og sóríasis. Birki er líka sagt örva húðina og auka teygjanleika hennar.
Vallhumall (Achillea millefolium) Vallhumall hefur stundum verið kallaður hermannajurtin. Hún er ákaflega fjölhæf og vinsæl lækningajurt og indjánar kölluðu hana "læknar allt". Vallhumall hefur lengi verið notaður gegn brunasárum og blæðingum. Vallhumall virkar vel gegn ofnæmisútbrotum og exemi og er talin ein besta jurtin til að græða þrálát sár. Þá þykur vallhumall hafa sérlega góð áhrif á bláæðakerfið.
Lesa meira um Sóley





