Yogi Tea
Yogi Bhajan. Eins og þið getið ýmindað ykkur þá er alvöru Yoga gúru á bakvið Yogi te. 1969 Byrjaði Yogi Bajhan að kenna Kundalini Yoga í Bandaríkjunum, hann deildi þannig með lærisveinum sýnum fornum vísdómi Ayurveda og heilbrigðum lifnaðarháttum sem hann hafði lært á Indlandi. Eftir hverja kennslustund gaf hann nemendum sínum sérstakt kryddað te sem hann blandaði sjálfur og kölluðu nemendur hans þetta með mikilli virðingu "Yogi Tea".
Yogi te skuldbindur sig til að nota eingöngu besta mögulega hráefni sem einnig verndar auðlindir jarðarinnar. Jurtirnar og kryddin sem þeir nota eru ræktuð í lífrænu umhverfi hvar sem því er við komið. Enn þann dag í dag þá hafa þeir haft möguleika til að rækta lífrænt öll 63 hráefnin sem notuð eru í tein okkar og erum stolt af því að geta sagt að okkar te eru 100% lífræn. Þau eru að sjálfsögðu vottuð lífræn og auk þess starfar Yogi te með bændum í Guatemala, India, Indonesiu, Afríku, Evrópu og fleiri löndum. Yogi te stundar sanngjörn Fair trade viðskipti enda samræmist það vel með Ayurveda sem eru forn Indversk fræði sem leggja áherslu á hófsemi og heil samskipti við aðra og eigið sjálf með virðingu fyrir umhverfinu. Ayurveda má þýða sem "lífsleikni" og hefur verið stundað á Indlandi í yfir 5000 ár.
Yogi tein okkar bjóða uppá te fyrir allar árstíðir, meltinguna, slökunina, hreinsunina og orku gefandi.
Kvenna tein okkar henta konum á öllum lífskeiðum þeirra. Allar þessar áhrifaríku blöndur eru hannaðar til að koma á jafnvægi á líkamann og styðja við þarfir kvenna við, styrkingu, líkamsræktina, slökun og jafnvægi.
Ćvafornar jurtablöndur, grundvallaðar á samsetningum sem eiga rætur að rekja til Ayurveda fræðanna, betur þekkt sem „fræði lífsins" og hvetur til heildræns lífsstíls, eflingar góðrar heilsu, náttúrulegrar fegurðar og farsældar. Frábærar 100% lífrænar jurtablöndur bragðið er alveg ekta, ljúft, beiskt og sefandi. Búið að vera á markaði í 39 ár.
Heilsa flytur inn öll te sem leyfilegt er að flytja inn frá Yogi te og eru þau fáanlega í nánast öllum verslunum á Íslandi.
Lesa meira um Yogi Te
Hægt er að skoða hér nýjasta bæklingin frá Yogi





