Beint á leiðarkerfi vefsins
Fara á forsíðu

B-12+Fólín/B-6 Sterkari 90 töf

Vöruflokkur: Sérhæfð bætiefni
Vörunúmer: 00b12a

Eiginleikar:

Lýsing vöru:

Vítamín B12 frá Heilsu inniheldur B12, B6 og Fólinsýru. Vítamín B-12 eða kóbalamín er vansleysanlegt. Stöðugasta form þess er sýanókóbalamín, sem notað er í B-12 bætiefni. Það er nauðsynlegt fyrir heilbrigðan vöxt (frumuskiptingu), kjarnsýruhvörf og heilbrigði tauga, húðar og slímhúðar, einnig mikilvægt fyrir eðlilega blóðmyndun. B-12 er nauðsynlegt fyrir efnaskipti prótína, fitu og kolvetna. Það er sem fyrr segir nauðsynlegt fyrir allan frumuvöxt, sérstaklega í meltingarfærum, beinmerg og taugavefjum. C-vítamín, B-6 og önnur B-vítamín auka frásog þess, einnig kalíum og natríum.

Fæðutegundir sem eru auðugar af B-12 eru m. a. lifur, nýru, eggjarauða, fiskur og magurt kjöt. Það er óalgengt í jurtaafurðum, en spirulina þörungurinn er þó auðugur af þessu vítamíni. B-12 þolir illa hita og skemmist við suðu, einnig draga tóbak, áfengi, kaffi og ýmis lyf úr frásogi sem og skortur á járni og B-6. Frásog þess virðist jafnframt minnka með aldrinum.

Einkenni um skort: Þar sem B-12 er mikilvægt fyrir frumuskiptingu gætir skorts fyrst þar sem frumuskipting er örust t.d. í blóði. Skortur veldur því blóðleysi. Fækkun rauðra blóðkorna kemur fram í aukinni þreytu og við fækkun hvítra blóðkorna eykst sýkingarhætta. Einnig getur skortur dregið úr storknun blóðs og orsakað tíðari marbletti, líka valdið hrörnun taugafrumna og skertri hreyfigetu útlima, minnistapi, sjóntruflunum og ruglaðri hugsun. Þar sem grænmeti er mjög snautt af B-12 er þeim sem einungis neyta grænmetis ráðlagt gefa þessu vítamín sérstakan gaum. Sú jurt sem er hvað auðugust af B-12 er spirulina.

Auk virkra efnanna inniheldur hver tafla maíssterkju, jurtatrejfa, sikalsíum fosfat, sterínsýrur, kalsíum starat og kísil.

Laust við glúten, sykur, salt, ger, tilbúin rotvarnar, litar- og bragðefni.

Notkun: 1 tafla á dag.

Virkt innihaldsefni Magn %RDS*
B12 100 míkrógrömm 10.000%
B6 5 mg 250%
Fólínsýra 100 míkrógrömm 50%


Til baka


Viðburðir og tilboð

5.12 2011 - 10.1.2013

Happaleikur Udo´s


Auglýsing

Nánar um Pure



Forsíða:

Vörur

Toppmynd

Nánar um Hale & Hearty

Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta