GRÆÐIR er smyrsl sem er laust við öll aukefni. Smyrslið er búið til eftir gamalli uppskrift sem varðveist hefur í fjölskyldu Sóleyjar til dagsins í dag. GRÆÐIR hefur margsannað virkni sína við ýmsum húðvandamálum, t.d. gegn exemi; þar á meðal sóríasis, þurrkublettum, ertingu í húð, varaþurrki, bleyjuútbrotum og minni háttar sárum. Góð virkni GRÆÐIS þegar kemur að brunasárum er þó það sem gerir hann hvað undraverðastan. Einnig hefur komið í ljós góð virkni hans hans gegn sveppasýkingum á kynfærum. GRÆÐIR er smyrsl sem ætti að vera til á hverju heimili, og í hverri handtösku. Inniheldur: Kókoshnetuolíu,* möndluolíu,* býflugnavax*, villtar íslenskar lækningajurtir (betula pubescens, achillea millefolium, salix spp, arctostaphylos uva-ursi). Engin innihaldsefni hafa verið prófuð á dýrum. *Lífrænt vottað.