Beint á leiðarkerfi vefsins
Fara á forsíðu

Sol DGL Licorice gumlet 30stk

Vöruflokkur: Jurtir
Vörunúmer: 00310584

Eiginleikar:

Lýsing vöru:

DGL lakkrísrót er auðug af flavonóíðum sem lina þrautir í maga og meltingarfærum. Hún hefur jákvæð áhrif á frumur magans, m.a. eykur hún blóðflæði til þeirra. Jurtin var á árum áður hefðbundin meðferð við magasári í Evrópu.1 Nú fást tilbúin lyf við magasári en DGL er enn notað m.a. til að hindra myndun magasárs af völdum bólguhemjandi lyfja.2. Rannsókn þar sem árangur af notkun DGL var borinn saman við lyfið Tagamed sýndi að þeir sem tóku Tagamed voru fyrr lausir við magasár, en DGL töflur skiluðu hliðstæðum árangri á lengri tíma.3 Ekki þýðir að gleypa hylki sé DGL notað við magasári, heldur verður að nota tuggutöflur, því DGL þarf að blandast ensímum í munnvatni til að koma verkunarferli þess af stað. DGL er einnig ráðlagt við brjóstsviða og magabólgum og líka við munnangri.

Óunnin lakkrísrót (ekki DGL) er notuð við sjúkdómum í öndunarfærum, svo sem hósta og astma. Fólk með háþrýsting, sykursýki eða nýrnasjúkdóma ætti ekki að nota lakkrísrót óunna, en því er óhætt að nota DGL.

Athugið! Fæðubótarefni koma ekki í stað hollrar fæðu. Þungaðar konur eða konur með barn á brjósti, fólk með alvarlega sjúkdóma eða á lyfjum ætti að ráðfæra sig við lækni eða sérfræðing áður en það hefur neyslu á fæðurbótaefnum. Geymist á þurrum köldum stað þar sem börn nái ekki til. Notist ekki ef innsigli er rofið eða horfið.

Notkun: Tyggið eina töflu allt að 2 sinnum á dag. Tyggið eins lengi og þörf þykir og hendið hylkinu sem eftir verður. Notið ekki meira en upp er gefið.
Inniheldur 30 tuggutöflur.

1. Schulz V, Hansel R, Tyler VE. Rational Phytotherapy: A Physicians' Guide to Herbal Medicine. 3rd ed. Berlin, Germany: Springer-Verlag; 1998:185.
2. Rees WD, Rhodes J, Wright JE, et al. Effect of deglycyrrhizinated liquorice on gastric mucosal damage by aspirin. Scand J Gastroenterol. 1979;14:605–607.
3. Morgan AG, McAdam WAF, Pacsoo C, Darnborough A. Comparison between cimetidine and Caved-S in the treatment of gastric ulceration, and subsequent maintenance therapy. Gut 1982;23:545–51.

Virkt innihaldsefni Magn %RDS*
DGL Licorice (Glycyrrhiza glabra) (rótar þykkni) 400 mg **
(Inniheldur ekki meira en 2% Glycyrrhizinic sýru)
Læknastokkrós ( Althaea officinalis) (rót) 20 mg **
Engifer ( Zingiber officinale) ( rótarþykkni ) ( 8:1) 15 mg **
Auk þess Mannitól, gúmmíefni, Xylitol, Maltitól, Isomaltitol, Magnesíum sterat, Sterinsýra, Kísill, FOS blanda ( Fructooligosaccharides, Spírað Mungbaunaþykkni), Stevía og náttúrulegt Anísbragð.


Til baka


Viðburðir og tilboð

5.12 2011 - 10.1.2013

Happaleikur Udo´s


Auglýsing

Nánar um Pure



Forsíða:

Vörur

Toppmynd

Nánar um Maldon

Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta