GSE-Liquid maximum 1 oz
![]() |
|
|||||||
|
Lýsing vöru: Náttúrulegt efnasamband sem er gert úr steinum úr lífrænt ræktuðum greipávöxtum. Framleiðslan breytir bioflavoníðum úr ávextinum í mjög virka sótthreinsandi blöndu sem talin er hafa áhrifaríka virkni. GSE er náttúruafurð. Það íþyngir ekki ónæmiskerfinu, og þrátt fyrir einstaklega kröftuga virkni hafa ekki verið skráðar neinar aukaverkanir. Fólk með ofnæmi fyrir sítrusávöxtum ætti þó að byrja meðferð með mjög smáum skömmtum og hafa samband við lækni áður en meðferð hefst. Gott er einnig að blanda GSE vökvann í vatni og drekka til sótthreinsunar. Til að fyrirbyggja matareitrun á ferðalögum er mjög gott að taka inn GSE dropa í vatni á hverjum morgni með morgunmatnum.Sniðugt er líka að nota GSE til að hreinsa aukefni af ávöxtum og grænmeti. Með því að blanda GSE dropa með vatni í úðabrúsa og úða á matvæli (hér er verið að tala um grænmeti og ávexti með hýði sem maður myndi skræla), látið bíða í 10 mínútur, skolið, þá er hægt að borða ferskt grænmeti og /eða ávexti beint eða smella þeim út í pottréttinn. * Fylgið ávallt leiðbeiningum um notkun. |
||||||||







