Beint á leiđarkerfi vefsins
Fara á forsíđu

Udo's choice oil 500 ml

Vöruflokkur: Sérhćfđ bćtiefni
Vörunúmer: 152002
Lýsing vöru:

Udo’s 3°6°9 olíublandan er sérvalin blanda náttúrulegra, óunninna, lífsnauðsynlegra fitusýra sem bragðast vel og bera keim af rjóma og hnetum. Innihaldið eru ferskar, óunnar og lífrænar hörfræ-, sesam- og sólblómaolíur ásamt kvöldvorrósarolíu og hrísgrjóna- og hafrafræsolíum, sem tryggja hámarksnæringu í minnsta mögulega magni. Olíublandan inniheldur einnig óerfðabreytt soja lesitín
sem aðstoðar við meltingu olíanna og hjálpar til við byggingu frumuhimna.

Udo’s 3°6°9 olíublandan inniheldur einnig miðlungslangar þríglýseríð-keðjur sem auðvelt er að melta og frumur líkamans geta nýtt sér beint til orkuframleiðslu án hættu á fitusöfnun. Udo’s 3°6°9 olíublandan er pressuð og síuð samkvæmt bestu mögulegu leiðum, við lágan hita og án ljóss og súrefnis til þess að ná fram hámarksnæringu og ferskleika. Olíunni er tappað á köfunarefnishreinsaðar, gulbrúnar flöskur sem eru byrgðar til að ekkert súrefni komist að. Flöskunum er lokað og pakkað í kassa til að vernda innihaldið og tryggja bestu mögulegu gæði. Olían er geymd í kæli og flutt á milli staða á ís ef mikill hiti er í loftinu, til þess að viðhalda ferskleika hinna lífsnauðsynlegu fitusýra.

Lífrænt ræktað, óerfðabreytt, GLA innihald: 12 mg pr. matskeið.

Lágmarksinntaka: 2 matskeiðar á dag eða 30 ml. Góð regla er að taka 1 matskeið á hvert 25 kg af líkamsþyngd. Gott er að taka olíuna í skeið með eða án matar eða blanda henni út í búst eða ávaxtasafa.

Best er að geyma í KÆLI. Steikið hvorki né hitið fyrir notkun. Þegar flaskan hefur verið opnuð er nauðsynlegt að geyma hana í kæli og best að neyta innan 8 vikna.

Virkt innihaldsefni Magn %RDS*
Hitaeiningar 900 kcal (3767,4kj)
Fitur 96,8 gr
Mettaðar 12,4 g
+ Transfitusýrur 0 g
Fjölómettaðar fitusýrur 64,7 g
Omega 6 19,7 g
Omega 3 45,0 g
Einómettaðar fitusýrur 19,7 g
Kólesteról 0 mg
Natríum 0 mg
Kolvetni 0 g
Trefjar 0 g
Sykur 0 g
Prótein 1,3 g


Til baka


Viđburđir og tilbođ

5.12 2011 - 10.1.2013

Happaleikur Udo´s


Auglýsing

Nánar um Pure



Forsíđa:

Vörur

Toppmynd

Nánar um Maldon

Stjórnborđ

Minnka letur Stćkka letur Hamur fyrir sjónskerta