Beint á leiðarkerfi vefsins
Fara á forsíðu

Udo Beyond Greens 255g

Vöruflokkur: Sérhæfð bætiefni
Vörunúmer: 152005
Lýsing vöru:

Beyond Greens er þægilegt og auðvelt að blanda, svo það gagnast þeim vel sem eru sífellt að og þurfa á skyndinæringu að halda. Blandan er líka upplögð fyrir þá farnir eru að eldast og alla þá sem heilsan hefur verið að angra. Beyond Greens kemur með skjótum og þægilegum hætti jafnvægi á mataræðið.

Aukið grænt – eykur orku. Beyond Greens er sannkölluð ofurfæða úr lífrænt ræktuðu byggi, alfaalfa, rúggrasi og spirulinu, klórellu, brokkáli, steinselju og káli. Þessar grænu afurðir eru ríkar af
afeitrandi blaðgrænu og innhalda góð vítamín, steinefni og prótein sem halda þér í toppformi. Sem dæmi inniheldur bygg margvíslega næringu eins og kalk, magnesíum, sink, kopar, selenium, B vítamín, karótín, og C og E vítamín. Orkugefandi efni eins og ginseng og blómafræflar, sem
vinna gegn álagi á erfiðum tímum, eru líka í Beyond Greens blöndunni.

Fitur sem græða
Í Beyond Greens er að finna mikið magn lífsnauðsynlegra fitusýra (EFAs). Hver matskeið inniheldur yfir 1000 mg af úrvals óunnum olíum sem eru hörfræ-, sólblóma- og sesamfræolía, en þær eru uppistaðan í Udo’s Choice Ulitmate Oil Blend. Lífsnauðsynlegar fitusýrur eru nauðsynlegar hverri einustu frumu líkamans svo þær fái þroskast með eðlilegum hætti; virki vel og endurnýji sig. Rannsóknir hafa sýnt að lífsnauðsynlegar fitusýrur vinna gegn bólgum, sjálfsónæmi, húðvandamálum, háum blóðþrýstingi, háu kólestróli og hafa einnig góð áhrif á taugakerfið og heilastarfsemina, hormónaheilsuna, þroska barna, styrk beina og insúlínójafnvægi.
Það sem meira er: Lífsnauðsynlegar fitusýrur auka efnaskipti og minnka um leið fitusöfnun en skilja þó eftir þann eðlilegan forða sem er uppspretta langvarandi orku, styrks og þreks.

Djúphreinsandi trefjar
Beyond Greens inniheldur uppleysanlegar trefjar sem soga kólesterólið í sig og skila út úr líkamanum. Þessar trefjarnæra vinveittu þarmagerlana og leysa upp óuppleysanlegu trefjarnar sem þarfnast mikillar aðstoðar. Uppleysanlegar trefjar minnka þannig hættuna á þróun sjúkdóma, koma jafnvægi á blóðsykurinn og draga úr óslökkvandi löngun í mat. Meðalmanneskja neytir aðeins tíu gramma af trefjum á dag sem er innan við helmingur af ráðlögðum dagskammti. Án fullnægjandi trefja í mataræði okkar tekur það matinn mun lengri tíma að fara í gegnum eltingarveginn. Kyrrstaða í kerfinu veldur botnfalli eða skilur eftir leifar sem festast í örtotunum en örtoturnar líkjast hárum og vernda allan þarmavegginn. Þegar örtoturnar eru þaktar matarleifum frásogast næringarefnin illa sem bitnar á heilsu okkar og orku. Trefjarnar í Beyond Greens losa um leifarnar
og sjá um að „skrúbba“ örtoturnar. Þegar örtoturnar eru orðnar hreinar ná þær að fásoga mun meira magn næringarefna og vítamína. Þrír skammtar af Beyond Greens, sem mælt er með að neytt sé yfir daginn, bæta við fimm grömmum af trefjum í mataræðið.

Áhrif andoxunarefna
Beyond Greens inniheldur einnig andoxunarríkt óhreinsað kjarnafæði og jurtanæringarefni, eins og grænt fæði, gulrætur, sojaspírur, kál, burdock rót, aðalbláber, rósaþyrni og þara sem og staðlað greipaldin, kjarnaþykkni og Ginkgo Biloba. Vísindalegar rannsóknir hafa í auknum mæli staðfest að náttúruleg andoxunarefni eru öflugust í baráttunni gegn mörgum sjúkdómum. Andoxunarefni berjast gegn sindurefnum sem eru rótin að mörgum hrörnunarsjúkdómum sem og ellihrörnunarsjúkdómum. Hörfræ innihalda mesta magn lignans sem um getur en það er sérstakt andoxunarefni sem finnst í jurtatrefjum. Þá hafa rannsóknir afhjúpað undraverða virkni þeirra
gegn bakteríum, vírusum og óæskilegri frumumyndum. Einnig hafa jákvæðar niðurstöður sýnt að þau draga úr einkennum breytingarskeiðsins og hormónatengdum sjúkdómum eins og brjósta-, móðurlífs- og blöðruhálskrabbameinum.

Meltingarensím
Meltingarensím eru fá í hópi þúsunda þekktra ensíma. Þau eru eins og skæri sem klippa niður matinn sem við nærumst á í eðlilegar einingar sem svo líkami okkar frásogar og setur saman aftur til þess að byggja úr frumur, vefi, líffæri, kirtla og allt líkamskerfið. Þau eru hluti af Beyond Greens til þess að tryggja eðlilegt niðurbrot og frásog allra hinna mikilvægu og heilandi næringarefna sem er að finna í blöndunni. Þessi samsetning trefja, afeitrandi grænnar kjarnafæðu og meltingarensíma gerir Beyond Greens að áhrifaríkri djúphreinsandi formúlu sem yngir upp meltingarveginn og gerir viðeigandi ráðstafanir varðandi meltinguna frá degi til dags ásamt því að tryggja upptöku næringarefnanna.

Orkugefandi ávaxtahristingur
1 msk Udo’s Choice® Beyond Greens®
1 msk Udo’s Choice® Ultimate Oil Blend®
1 bolli jógúrt, mjólk eða ávaxtasafi
1 banani

Mælt er með einum ferskum, árstíðabundnum ávexti. Blandið öllu saman í blandara.

Uppástungur um notkun

• Ein matskeið (8 g), blandað við vatn eða ávaxtasafa,allt að þrisvar á dag.
• Til þess að fá fljótlegan og næringarríkanmorgunverð, blandið eingöngu í vatn eða ávaxtasafa,
hrærið og drekkið í einum grænum.
• Notið í stað kaffis eða sætinda sem morgun- eða síðdegisnasl. Kemur jafnvægi á blóðsykurinn, myndar eðlilega orku og hefur góð áhrif á heilsuna.
• Blandið í próteindrykki, ab-mjólk, eða ávaxta- og skyrdrykki sem drekka á í stað máltíðar.
• Bætið í grænmetissafa, epladjús, eplasósur, hafragrjón eða jógúrt.
• Blandið saman við við Udo’s Choice® Ultimate Oil Blend® sem viðbótarnæringu.
• Dreifið yfir salat, grauta eða annan mat sem ekki verður hitaður.
• Notið sem nærandi skyndifæði eða hressingu á milli mála.
• Geymið Beyond Greens® í kæli en óhætt er þó að hafa það utan kælis í stuttan tíma, t.d. á ferðalögum.



Til baka




Forsíða:

Vörur

Toppmynd

Nánar um Vivani

Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta